Karel
— Rannsóknarvettvangur rímna
opin leit
orð byrjar á
orð endar á
nákvæmlega
mörg orð: öll
mörg orð: amk eitt
lok vísuorðs
Fletta
Lemmata
|
Textatengsl
|
Ordbog
β
Háttatal
— 11. ríma
—
Sveinbjörn Beinteinsson
Lemmata
|
Textatengsl
umgjörð
ríman
241
.
Ríman
Viltu heyra væna mín,
vísur, sem ég kvað til þín
eina þögla þorranótt
þegar allt var kyrrt og rótt.
Skoða...
242
.
Ríman
Svinnust hlynnir söngvum að
sætan mæt, ég kveð um það,
mest og bezt þitt lundarlag,
leiðir greiðir mínum brag.
Skoða...
243
.
Ríman
Hrímuð Gríma skyggði skjá.
Skímu-bríma gneisti þá,
hrokkinn, stokkinn óði af
okkur nokkurn bjarma gaf.
Skoða...
244
.
Ríman
Yndi margt við áttum þrátt,
orða- röktum -þáttu sátt.
Þóttumst engan eiga beyg
ofar hyggjan fleyga steig.
Skoða...
245
.
Ríman
Ljósa dísin ljóðamáls,
lokkar stukku þér um háls
bjarma hvörmum fríðum frá
fagurlogar sendu þá.
Skoða...
246
.
Ríman
Saman þá við ortum óð
oft var gaman þegar ljóð
tveggja máli orðuð á
okkar beggja lýstu þrá.
Skoða...
247
.
Ríman
Þessi tími þannig leið
þar til hugans annað beið.
Minning hrein í hyggju bjó,
——hvert sem vegir liggja þó.
Skoða...
248
.
Ríman
Sumartíðin björt og blíð
bjó að skrauti löndin víð
allt hið kalda vetrarvald
varð að leysa hvítan fald.
Skoða...
249
.
Ríman
Hófum undir ymur grund
eina hreina morgunstund,
hlaupa fráir hestar þá
Herkis merka bænum frá.
Skoða...
250
.
Ríman
Fáki gráum fremstur á
fríður ríður Hlynur þá.
Klárinn þéttan þrífur sprett
þýður, blíður, stilltur rétt.
Skoða...
251
.
Ríman
Rauður jór með flýti fór
fagurlima-svæðin stór,
sat hann Kár í söðli hár,
sveif á skeiði hestur frár.
Skoða...
252
.
Ríman
Fylgja bræðrum seggir sex.
Sungið er og gleði vex.
Hvers í greipum háskept öx
hærra ber en alreist föx.
Skoða...
253
.
Ríman
Upp til heiða halir geyst
hafa breiða skóga þeyst.
Ferðum heldur flýttu þá,
fyrir kveld að Veggjum ná.
Skoða...
254
.
Ríman
Hlýyrt fagnar heimaöld
hópi bragna þetta kvöld.
Veizlu magna vífin þá,
virðum hagnar beini sá.
Skoða...
255
.
Ríman
Gleðisöngva kappar kátt
kveða næsta snjallt og hátt.
Rekkar glæddu gamanskil,
gekk þar allt með friði til.
Skoða...
256
.
Ríman
Hildur kom þar, vífa val
vildi fagna prúðum hal
snilldin skein af skírri brá.
Skildi fögrum hélt hún á.
Skoða...
257
.
Ríman
Gekk hún fram að fríðum rekk,
fékk nú Hlyni mærin þekk
valinn skjöld, og hóf svo hjal:
„Halur gripinn eiga skal.
Skoða...
258
.
Ríman
Njóttu Hlynur hlutar góðs
hljóttu vinur kjörgrip fljóðs.
Reyna verður háskinn höld.
Hreinan berðu jafnan skjöld.“
Skoða...
259
.
Ríman
Þessi mærin þegni kær
þakkir ærið góðar fær.
Gullbaug svanna gefur hann.
Greina þannig síðan vann.
Skoða...
260
.
Ríman
Vann ég ást, þess minnast má,
máist varla ljómi sá
sá ég snót, og vona völd
völdu þig hið sama kvöld.
Skoða...
<< fyrri ríma
Háttatal, 11. ríma
næsta ríma >>