Karel
— Rannsóknarvettvangur rímna
opin leit
orð byrjar á
orð endar á
nákvæmlega
mörg orð: öll
mörg orð: amk eitt
lok vísuorðs
Fletta
Lemmata
|
Textatengsl
|
Ordbog
β
Háttatal
— 6. ríma
—
Sveinbjörn Beinteinsson
Lemmata
|
Textatengsl
umgjörð
ríman
131
.
Ríman
Bæði tvö ef enn við ættum
orð til góðs,
rakið skal af þúsundþættum
þræði ljóðs.
Skoða...
132
.
Ríman
Okkur lokkar ljóðaeldur
listum nær,
tíðum blíðum vísum veldur
viti skær.
Skoða...
133
.
Ríman
Reisum aftur rímnahátta
rofið hof
innið skreyti ástarþátta
ofið lof.
Skoða...
134
.
Ríman
Einn á fönnum Hlynur háði
harðan leik,
úlfa tönnum ört hinn bráði
undan veik.
Skoða...
135
.
Ríman
Ýlfurhljóðin sultarsáru
söng um blóð
grimmdaróðan yfir báru
auðnarslóð.
Skoða...
136
.
Ríman
Snævinn víða villur gengur
virðum fjær.
Ægihríða stilltur strengur
stirður hlær.
Skoða...
137
.
Ríman
Kjaftavotir Gríðar gotar
glefsa hart.
Færi notast, fremstan rotar
frækinn snart.
Skoða...
138
.
Ríman
Rann um snæinn, varla vægir,
víða hlíð.
Storminn lægir, heldur hægir
hríða stríð.
Skoða...
139
.
Ríman
Sást þar dalur fönnum falinn,
fagnar því
hann, sem lengi hefur gengið
hættum í.
Skoða...
140
.
Ríman
Bæ við fjalla-hlíðar halla
háan sá.
Hlynur þangað þreytir ganginn
þá um snjá.
Skoða...
141
.
Ríman
Vera mundi friðland fundið,
frækn sem kaus.
Gera flokkur burtu brokkar
bráðalaus.
Skoða...
142
.
Ríman
Hlynur svinnur heim að inni
hiklaust fór.
Kom til hurðar halur furðu
hrikastór.
Skoða...
143
.
Ríman
Höldur gildur vita vildi
víst og satt,
hver að þar af fjöllum fari
firna hratt.
Skoða...
144
.
Ríman
Hlynur vá og vanda frá,
sem var í för,
sannar fréttir flytur létt.
Og fær þau svör:
Skoða...
145
.
Ríman
„Segja lítið hrós ég hlýt
um hrakför þá,
týnist gát við flas og fát
það færðu sjá.
Skoða...
146
.
Ríman
Hroðagisting, voðavist,
þér vetur bjó,
hríð við mesan blíðu brest
hann beitti þó.
Skoða...
147
.
Ríman
Mein á heiði margur beið
og missti fjör.
Varma þráðu vargar bráð
og veizlukjör.
Skoða...
148
.
Ríman
Inni finni friðar hlynning
fólki hjá
hann, sem rann um fölar fannir
fjöllum á. ““
Skoða...
149
.
Ríman
Hinum þakkir hæfar valdi
Hlynur þá.
Ríku inn frá veðra valdi
víkur sá.
Skoða...
150
.
Ríman
Hrakinn bragn í bæinn fer
með bónda þar.
Lúnum hvíldin ljúfust er
ef langþráð var.
Skoða...
<< fyrri ríma
Háttatal, 6. ríma
næsta ríma >>